Hverjar erum við?
Um okkur
Við erum tveir nemar í uppeldis- og menntunarfræði sem sameinum krafta okkar til að vekja athygli á mikilvægi samskipta á unglingsárunum. Með þessari síðu viljum við veita bæði unglingum og foreldrum fræðslu og innsýn í þau stórkostlegu (og stundum flóknu) þroskaskeið sem unglingaárin eru.

Afhverju þessi heimasíða?
Við vildum skapa vettvang þar sem bæði unglingar og foreldrar geta fengið svör við spurningum, fræðslu sem er aðgengileg og byggð á traustum rannsóknum.
Heimasíðan byggir meðal annars á niðurstöðum úr könnun sem við lögðum fyrir mæður sem eiga unglinga.
Við vildum heyra beint frá þeim hvaða áskoranir og spurningar koma upp og bregðast við þeim með fræðslu og hugmyndum að lausnum.
Hvað færðu út úr síðunni?
Skiljanlega og áhugaverða fræðslu um unglingsheilann, kynþroska og sjálfsmynd
Hagnýt ráð og punkta fyrir betri samskipti
Innsýn í það sem unglingar eru að ganga í gegnum
Stuðning við foreldra og tengslin heima fyrir