Hvað er unglingurinn minn að ganga í gegnum?

Markmið síðunnar er að veita trausta og aðgengilega fræðslu um þroska unglinga og styðja við uppbyggileg samskipti foreldra og unglinga. Efnið samanstendur af rannsóknum, fræðslugreinum og hagnýtum ráðum um samskipti, þroskaferli og félagslegar áskoranir unglingsáranna.

Unglingsárin

Unglingsárin eru mikilvæg umbreytingarskeið þar sem kynþroski leiðir af sér fjölbreyttar líkamlegar, tilfinningalegar og félagslegar breytingar. Þótt ferlið sé algilt, er tímasetning, hraði og upplifun einstaklingsbundin og mótast af erfðum, hormónum og umhverfi. Á þessum tíma eykst þörf unglinga fyrir sjálfstæði og mótun sjálfsmyndar. Þeir vilja fá aukið rými til að taka eigin ákvarðanir, sem getur valdið árekstrum í samskiptum við foreldra. Jafningjaáhrif og samfélagsmiðlar hafa einnig mikil áhrif bæði jákvæð og neikvæð á hegðun, líðan og sjálfsmynd. 
Foreldrar skipta miklu máli á þessum tíma.  
Með hlýju, skýrum mörkum og virkum samskiptum geta þeir haft djúpstæð og jákvæð áhrif á þroska og líðan unglinga. 

Við vonum að efnið hér fyrir neðan veiti innsýn og gagnleg ráð fyrir foreldra á þessum mikilvæga tíma í lífi unglinga. 

Myndbandið “Why Are Teens So Moody?” útskýrir á einfaldan og myndrænan hátt hvernig breytingar í heila unglinga hafa áhrif á skapsveiflur og tilfinningaviðbrögð á þessum mótunarárum.

Heilastarfsemi

Á unglingsárum á sér stað ör og mikilvægur heilaþroski þar sem mikill kraftur og breytingar eiga sér stað bæði í heilabyggingu og tilfinningaúrvinnslu.

brain, hand, grey, gray brain, brain, brain, brain, brain, brain

Sjálfsmyndarleit unglinga

Unglingsárin eru tími mikilla breytinga  bæði líkamlegra, tilfinningalegra og félagslegra. Á þessu skeiði er leit að sjálfsmynd ein helsta áskorunin sem unglingar glíma við.

A unique portrait of a woman reflected in a broken mirror, evoking emotion and introspection.
Minimalist pink background with a white speech bubble for creative design projects.

Samskipti foreldra og unglinga

Það sem þú segir, hvernig þú hlustar og hvernig þú bregst við – það skiptir meira máli en þú heldur.

Samfélagsmiðlar

Foreldrar upplifa oft vanmátt gagnvart stafrænu lífi barna sinna og eiga erfitt með að fylgjast með nethegðun. Skortur á skilningi getur dregið úr getu þeirra til að veita stuðning og bregðast við t.d. neteinelti. Mikilvægt er að foreldrar tileinki sér þekkingu á netumhverfi og ræði opinskátt við börnin til að efla öryggi og traust.

Woman using smartphone in cafe with social media notifications around.

Áhættuhegðun

Áhættuhegðun er ekki tilviljanakennd heldur flókið samspil tilfinninga, félagslegra tengsla og aðstæðna. Sem foreldri getur þú haft áhrif með tengslum, trausti og samtali.

A lively group celebrating at night with color smoke bombs in a street festival.

Leiðandi uppeldi

Leiðandi uppeldi er ein áhrifaríkasta uppeldisaðferðin samkvæmt fjölda rannsókna. Hún byggir á hlýju, virðingu og skýrum mörkum þar sem börn og unglingar fá rými til að tjá sig, læra að taka ábyrgð og vaxa í öryggi.
Hér fyrir neðan færðu góðar upplýsingar og hagnýt ráð.

mindful parenting, attentive education, coordinated education, conscious education, balanced upbringing, quiet upbringing, centered education, compassionate education, conscious child rearing, empathetic education, focused education, mindful communication, mindful discipline, mindful leadership, mindful listening, mindful education, mindful reactions, mindful role modeling, non-judgmental education, non-reactive parenting, nurturing education, parental mindfulness, current education, reflective education, responsive education