Hvað er eiginlega að gerast í heilanum mínum?

Unglingsheilinn er á hraðferð í gegnum stórar breytingar og það hefur áhrif á hegðun, hugsun og tilfinningar. Þetta tímabil er einstakt, fullt af tækifærum… en líka stundum svolítið ruglingslegt.
Þú getur upplifað sterkar tilfinningar, orðið rosalega spennt/ur fyrir eitthverju og svo leiður/leið á eftir. Það getur verið erfitt að útskýra hvað er að gerast eða hvers vegna þú bregst eins og þú gerir.
En það er allt eðlilegt.
Heilinn þinn er bara að vinna í nýrri útgáfu af sjálfum sér.

Í þessu stutta og fræðandi myndbandi útskýrir Dr. Daniel Siegel, geðlæknir og heilasérfræðingur, hvað gerist í heilanum á unglingsárunum og af hverju þetta tímabil getur verið bæði flókið og magnað. Þú færð innsýn í hvernig breytingar í heilanum hafa áhrif á tilfinningar, hugsun og hegðun  og hvers vegna þetta tímabil er fullt af nýjum möguleikum.

Að skilja eigin heila getur hjálpað þér að skilja sjálfa/n þig.

🔑 Nokkur atriði sem gott er að vita:

🧠 Tilfinningar og hvatir fá meira vægi:
Svæði í heilanum sem tengjast tilfinningum, hvötum og umbun virkjast mikið. Þú gætir orðið forvitnari, ævintýragjarnari og stundum aðeins djarfari en áður.

🧩 Rökhugsunin er enn að malla í bakgrunni:
Framheilinn, sem hjálpar þér að stjórna hvötum og hugsa fram í tímann, er ekki fullþroskaður fyrr en um 25 ára. Það þýðir að það getur verið erfitt að „hugsa til morgundagsins“ þegar tilfinningarnar taka yfir.

🧪 Boðefni í heilanum: litla efnalífið þitt

💥 Dópamín → Gerir þig spenntan fyrir nýrri reynslu, tengist umbun og vellíðan.
🌫️ Serótónín → Hefur áhrif á skap og svefn. Getur verið óstöðugt og valdið skapsveiflum.
🔥 Kortisól → Streituhormón sem getur haft áhrif á minni og líðan þegar það er hátt.

📌 Hafðu þetta í huga:

  • Það er ekki þú sem ert „of tilfinningaleg/ur“ eða „of hvatvís“ – heilinn þinn er bara enn að þroskast.

  • Þú ert að byggja upp þá manneskju sem þú munt verða og það er allt í lagi að vera ófullkomin/n.

Heilinn þinn er að „klippa til“ og mótast af því sem þú notar mest

Heilinn er stöðugt að losa sig við taugatengingar sem eru ekki mikið notaðar og styrkja þær sem þú virkjar reglulega. Þetta kallast taugasnyrting (pruning) og hjálpar heilanum að verða skilvirkari og sérhæfðari.

👉 Það sem þú veitir áhuga og eyðir tíma í það eykst
Því meira sem þú sinnir ákveðnum hlutum, eins og tónlist, íþróttum, sköpun, lærdóm eða jafnvel neikvæðum hugsunum því sterkari verða tengingarnar í heilanum þínum fyrir það.

🔁 Það sem þú æfir, styrkist. Það sem þú vanrækir, hverfur smám saman.

Hvað hjálpar ?

  • skilja hvernig heilinn virkar getur hjálpað þér að vera mildari við sjálfan þig.

  • Sterk sjálfsmynd og gott sjálfsálit geta verndað þig gegn utanaðkomandi álagi.

  • Stuðningur frá fjölskyldu og vinum er lykilatriði til að takast á við áskoranir – þú þarft ekki að gera þetta einn/n.

Scrabble tiles forming the phrase 'OWN YOUR ERROR'. Great for concepts of accountability and motivation.