Unglingsárin - Er þetta eðlilegt… eða bara ég?

Að skilja sjálfan sig betur á unglingsárum
Þú finnur fræðslu um kynþroska, heilaþroska, sjálfsmynd og samskipti og færð innsýn í af hverju þú hugsar og bregst við eins og þú gerir.
Kynþroski er eitt af stærstu og mikilvægustu ferlunum á unglingsárunum. Á þessum tíma verða miklar breytingar í líkama, heila, hegðun, hugsun og tilfinningum þú ert að breytast úr barni í fullorðinn einstakling.
Hér geturðu lært að skilja betur hver þú ert og hvernig þú getur tekist á við þessar breytingar á jákvæðan hátt.
Heilaþroski

Unglingsheilinn er á hraðferð í gegnum stórar breytingar og það hefur áhrif á hegðun, hugsun og tilfinningar. Þetta tímabil er einstakt, fullt af tækifærum… en líka stundum svolítið ruglingslegt og það er eðlilegt!
Sjálfsmynd - Hver er ég?
Sjálfsmyndin þín er ekki bara hvernig þú lítur út eða hvað aðrir halda hún er sú mynd sem þú mótar smám saman um það hver þú ert, hvert þú stefnir og hvað skiptir þig máli. Þú ert að læra að þekkja sjálfa/n þig og það má alveg taka tíma.

Tæknin, foreldrar og þú...
Foreldrar skilja ekki alltaf heiminn sem þú lifir í þessum stafræna heimi.
Það er ekkert skrýtið.
Stundum finnst þeim netið ruglingslegt og erfitt að fylgjast með.

Hópþrýstingur – þegar hópurinn hefur áhrif á þig
Það er eðlilegt að vilja tilheyra. Vinir og jafnaldrahópar skipta miklu máli á unglingsárunum þeir geta veitt stuðning, skemmtun og tilfinningu fyrir að passa inn.
En stundum fylgir því að hópþrýstingur getur haft áhrif á hvað þú gerir jafnvel þótt þú sért ekki viss hvort þú viljir það.
