social media, marketing, facebook, communication, strategy, seo, social, web, online, multimedia, media, digital, networking, social media, social media, social media, social media, social media, seo, seo

Snjalltækin og unglingarnir: ekki bara bann og boð

  • Unglingar lifa stórum hluta lífs síns í stafrænum heimi sem getur bæði verið uppspretta jákvæðra tengsla og félagslegs stuðnings en líka streitu og vanlíðanar. 

  • Þess vegna er ekki nóg að banna eða refsa, markviss leiðsögn og opið samtal skila oft betri árangri.

  • Hvetjið barnið ykkar til að tala um upplifun sína á samfélagsmiðlum. Hvað lætur það þeim líða vel? Hvað veldur vanlíðan? 
  • Rannsóknir benda til þess að það sé ekki aldurinn sem skiptir mestu máli þegar foreldrar ákveða hvenær barn fái sinn fyrsta farsíma; heldur þroski og ábyrgðartilfinning barnsins.
  • Hugið að því hvort barnið ykkar sé fært um að setja mörk, halda einbeitingu og hafa sjálfstjórn áður en það fær aðgang að samfélagsmiðlum og eigin tæki. 
problem, solution, help, support, information, info, board, writing, chalk, blackboard, teaching, study, concept, write, slate, problem, problem, problem, solution, solution, solution, solution, solution, help, help, help, support, support

Digi-Gen verkefnið

Digi-Gen verkefnið er rannsóknarverkefni sem einbeitir sér að því hvernig stafrænar tækninýjungar hafa áhrif á líf ungmenna í Evrópu. Markmið þess er að skilja betur hvernig stafrænt samfélag mótar reynslu, menntun og félagslíf ungs fólks. Verkefnið sameinar sérfræðinga frá ýmsum fræðasviðum og löndum til að rannsaka þessi áhrif og þróa stefnumótandi tillögur sem styðja við jákvæða stafræna þróun fyrir ungmenni.

social media, smartphone, crowd, people, communication, balloons, silhouettes, group of people, group, viewers, together, community, cooperation, assembly, collection, company, social media, social media, social media, social media, viewers, viewers, viewers, viewers, viewers

Umboðsmaður barna: Góð ráð

Á heimasíðu Umboðsmanns barna má finna gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra, til dæmis hvernig stilla má persónuvernd á samfélagsmiðlum, setja skjátímamörk á ýmsum miðlum, velja öruggari útgáfur af forritum og virkja öryggisstillingar til að vernda börn gegn óviðeigandi efni.

Hagnýt ráð fyrir foreldra um samfélagsmiðlanotkun unglinga:

  • Tala reglulega um samfélagsmiðla – Spyrðu opinna spurninga og sýndu áhuga á því sem unglingurinn horfir á og tekur þátt í, án þess að yfirheyra.

  • Kenna gagnrýna hugsun – Hjálpaðu unglingnum að skilja að það sem birtist á samfélagsmiðlum er oft ekki raunveruleikinn heldur valin sýn.

  • Setja mörk í sameiningu – Mótið reglur saman um skjátíma, símanotkun á kvöldin og tæknifrí svæði til að skapa jafnvægi.

  • Vertu góð fyrirmynd – Sýndu sjálf(ur) ábyrgða skjánotkun og að það er eðlilegt og gott að leggja símann frá sér.

  • Talaðu um netöryggi og siðferði – Ræddu mikilvægi þess að vernda einkalíf sitt og bera virðingu fyrir öðrum á netinu.

  • Taktu samfélagsmiðla alvarlega, án þess að dæma – Reyndu að skilja hvernig samfélagsmiðlar virka í lífi unglinga og forðastu að gera lítið úr því sem þeim þykir mikilvægt.

Samvinna heimilis og skóla skiptir máli

  • Hópnálganir virka: þegar öll börn innan sama hóps fylgja svipuðum reglum um snjalltækjanotkun, minnkar félagslegur þrýstingur og áhrifin verða meiri. 
  • Dæmi um slíkt eru reglur í skólum, eins og í Frakklandi þar sem snjallsímabann í grunnskólum hefur skilað jákvæðum áhrifum á einbeitingu og líðan nemenda.

SKAMMSTAFANIR Á NETINU

Í samskiptum á netinu nota börn og unglingar oft enskar skammstafanir sem geta verið ókunnar foreldrum. Þó að þú fáir aðgang að skilaboðum barnsins þíns, er mikilvægt að hafa í huga að ýmsar merkingar geta leynst á bak við stutt orð og stafi.
Hér fyrir neðan finnur þú algengar skammstafanir.

Close-up of Scrabble tiles forming words related to education and school.