Uppbyggileg samskipti skipta máli
Átök milli foreldra og unglinga eru eðlilegur hluti þroskaferlisins. Ef þau eru unnin með sveigjanleika og gagnkvæmri virðingu geta þau þó verið uppbyggileg. Slík samskipti styrkja tengsl, efla félagsfærni og styðja við sjálfstæði unglinga. Þau skapa einnig dýrmæt tækifæri fyrir unglinga til að æfa sig í að setja mörk, tjá skoðanir og leysa ágreining á uppbyggilegan hátt.
“Unglingar þurfa ekki fullkomna foreldra, þeir þurfa foreldra sem hlusta.”
Hugmyndafræði Thomas Gordon: Samskipti byggð á virðingu
Thomas Gordon var sálfræðingur sem trúði því að allir gætu lært að eiga opnari, heiðarlegri og virðingarmeiri samskipti án þess að þurfa að öskra, stjórna eða gefast upp.
Hann þróaði einfaldar en áhrifaríkar leiðir fyrir foreldra og kennara til að:
hlusta betur
koma sínum eigin tilfinningum á framfæri án ásakana
leysa ágreining þannig að báðir aðilar vinni.

"Foreldrum er kennt um en ekki kennt"
Laurence Steinberg, einn fremsti sérfræðingur í uppeldi og þroska unglinga, hefur sett fram 10 einfaldar en áhrifaríkar uppeldisreglur sem byggja á traustum rannsóknum. Þær veita foreldrum skýra sýn á það sem skiptir mestu máli í uppeldi.
Byggjum sterkari tengsl heima
Þetta efni er hannað til að efla samskiptahæfni barna og unglinga með því að stuðla að opnum og uppbyggilegum samræðum innan fjölskyldunnar. Markmið þess er að kenna börnum að tjá tilfinningar sínar og skoðanir á jákvæðan hátt, sem styrkir sjálfsmynd þeirra og bætir samskipti við aðra. Rannsóknir hafa sýnt að markvissar samræður um ágreinings- og samskiptamál geta dregið úr neikvæðri hegðun og aukið félagslega færni barna.
Hér fyrir neðan er linkur að handbókunum.