social media, marketing, facebook, communication, strategy, seo, social, web, online, multimedia, media, digital, networking, social media, social media, social media, social media, social media, seo, seo

📱 Ertu alltaf online… en samt ein/n stundum?

Netið getur verið geggjað, þú tengist fólki, færð læk og hlærð að memes.
En það getur líka verið stress:
„Af hverju sá hún skilaboðin mín og svaraði ekki?“
„Af hverju fær hann 300 læk fyrir mynd af kaffi?“

Foreldrar fatta þetta ekki alltaf en þau geta hjálpað.
Þetta snýst ekki um bann.
Þetta snýst um balance.

Lífið á skjánum er raunverulegt en það á ekki að stjórna þér.

📱 „Ég fæ að vera með síma – en fæ líka skammir…“

Foreldrar: „Þú ert ALLTAF í símanum!“
Einnig foreldrar: „Af hverju svaraðirðu mér ekki?“

Það getur verið frekar ruglandi. En málið er: þau vilja þér vel.
Þau vilja vernda þig og skilja hvað þú ert að ganga í gegnum.
En þau þurfa líka að hlusta, sýna þér tillitsemi og virða þinn heim.

👉 Góð samskipti snúast ekki bara um að þú hlustir á þau heldur líka að þau hlusti á þig.
Þegar báðir aðilar sýna skilning og virðingu, verða samskiptin mun betri.

„En ég stjórna mér alveg sjálf/ur… eða hvað?“

Já, þú gerir það að einhverju leyti.
En við speglumst líka í því sem aðrir gera.
Ef allir eru með síma í frímínútum, þá verður það „normið“.
Sama með likes og fylgjendur það verður eins og tölur segja þér hver þú ert.
En það gera þær ekki!

Einmanaleiki á netinu? Já, það er til.
Rannsóknir sýna að eftir 2012 fór einmanaleiki unglinga upp – all over the world.
Á sama tíma fór notkun snjallsíma og samfélagsmiðla RAKÉTT upp.
Tilviljun? Líklega ekki.

📉 Meiri notkun → minni svefn, meira kvíði, verri sjálfsmynd

Hefurðu einhvern tímann borið þig saman við aðra á samfélagsmiðlum og fundist þú ekki nóg?
Þetta stutta myndband, sýnir hvernig samfélagsmiðlar geta haft áhrif á hvernig við hugsum um okkur sjálf oft án þess að við tökum eftir því.

Samfélagsmiðlarnir og hausinn þinn:

  • Þú berð þig saman við aðra en það sem þú sérð er oft ekki raunveruleikinn

  • Þú getur orðið háð/ur viðbrögðum – like, comment, snap-streaks

  • Þú færð FOMO (fear of missing out)

  • Þú gætir fengið kvíða yfir því að vera ekki með

Þess vegna skiptir máli að vera meðvituð/ur um áhrifin sem samfélagsmiðlar hafa á þig og passa upp á andlega heilsu.

👉 Þú þarft ekki að vera online allan tímann til að tilheyra.
👉 Þú mátt velja hvað þú lætur inn, hverjum þú fylgir og hvað þú tekur inn á þig.

Netið getur verið:

✔️ staður fyrir stuðning
✔️ vettvangur fyrir röddina þína
✔️ leið til að skapa, tengjast og læra

En það þarf að vera meðvituð/aður.
Þú stjórnar betur þegar þú skilur hvernig þetta virkar.

 

Two people looking at social media on a smartphone at a wooden table.